Matargestir komu syndandi frá hafi

Það var skemtilegur hópur hjá mér í mat í gærkvöldi. Ég er vanur því að gestir komi á einkabílum, rútum, limmósínum eða jafnvel gangandi en þetta er fyrsta sinn sem gestir koma syndandi í sjónum til mín þeir syntu um 400 metra leið í ísköldum sjónum einungis í sundskýlum eða sundbol

Það var orðið dimmt þegar sundfólkið kom að landi og þau voru að gantast að því að selurinn sem fylgdi þeim á sundinu hefði verið með stærri höfuð einn einn sundmannana, sem þykir víst höfuðstór Smile  PICT0013

eftir sundið skelltu þau sér í jurtagufuna og heita sjópottinn hjá mér í spa húsinu þar sem sá hluti gestanna beið sem er minna fyrir sjósundið á eftir kom  þessi hressi hópur í betri stofuna hjá mér og gladdist í mat og drykk.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Þetta er alvöru fólk...

Brynja Hjaltadóttir, 12.10.2007 kl. 21:24

2 Smámynd: Bogi Jónsson

Engar smá hetjur ég hef ca 10 sek. sjósundþol.

Bogi Jónsson, 14.10.2007 kl. 21:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband