Íslending haldið í gíslingu eitt ár og rúma sjö mánuði

Ég er smeykur um að það væri þörf á að fleiri bæðust afsökunar.

Það tók mig eitt ár og rúma 7 mánuði að fá endanlega neitun á atvinnuleyfi hérlendis, á meðan stóð nýbyggt og sérinnréttað húsnæðið tilbúið en var ekki hægt að byrja rekstur vegna þess að ekki fékkst atvinnuleyfi fyrir þá kunnáttumanneskju sem mig vantaði, þrátt fyrir að auglýst væri eftir starfsmanninum bæði hérlendis og á ESS  svæðinu.

ég var að leita eftir starfsmanni með mikla reynslu og þekkingu á Thailendsku nuddi og Thailendskum spa meðferðum til starfa í sér byggðu og sérhönnuðu Thailendsku spai.

ég fékk um 15 atvinnutilboð frá vinnumálastofnum vegna auglýsingarinnar á Ess svæðinu engin þeirra hafði próf frá virtum thailendskum nuddskóla né hafði reynslu í Thailensku spai eða menningu.

Að endingu, eftir fjölmargar ítrekanir ítrekanir og rökstuddar skýringar á því hversvegna mig vantaði manneskju með þessa lámarks þekkingu og reynslu, og að ég gæti ekki notað starfsmann frá fyrrum sovét sem vinnur í vöruhúsi en er til í að læra Thai nudd, í staðin, eins og hluti þeirra atvinnutilboða frá vinnumálastofnum  hljóðaði upp á, fékk ég neitun á þeim forsemdum að ég gerði óeðlilega kröfu til starfsmansins og þær kröfur sem ég gerði til starfsmannsins væru væntanlega gerðar til að fæla starfsmenn frá.

Þetta er í hæsta lagi undarleg niðurstaða að neita atvinnuleyfi vegna þess að ég leita að sambærilegri manneskju innan ESS og sú sem hefur beðið síðustu 19 mánuði utan ESS og að láta það í veðri vaka að þessar hæfniskröfur séu einungis settar til að fæla íbúa Ess ríkja frá, þegar allt umsóknar ferlið hefur einkennst af því að fæla mig frá og láta mig gefast upp.

Þeir sem búa í glerhöllum eiga ekki að stunda grjótkast.

Sjá ferlið nánar 

 

 


mbl.is Mun krefjast afsökunarbeiðni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég ráðlegg þér að lesa bókina Guests of the Ayatollah.  Hún fjallar um raunir bandarísku sendiráðsstarfsmannanna sem var haldið í gíslingu í 444 daga í Íran á dögum Khomeni erkiklerks.  Hún ætti að aðstoða þig við að vinna úr þessari skelfilegu reynslu og glímu við íslensk yfirvöld.

Jónatann (IP-tala skráð) 13.12.2007 kl. 21:52

2 Smámynd: Bogi Jónsson

Hæ Jónatan

góð ráðlegging,  eitthvað verð ég að gera mér er orðið hálf illt í enninu á að rekast þessa veggi 

Bogi Jónsson, 13.12.2007 kl. 22:03

3 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Sæll Bogi. Bara að kvitta fyrir innlitinu. Long time no C

Brynja Hjaltadóttir, 15.12.2007 kl. 23:15

4 Smámynd: Solla Guðjóns

my pictureskallinn minn.

Solla Guðjóns, 21.12.2007 kl. 13:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband