Skömminni skilað til þeirra sem eiga hana (má deila min vegna)

20190514_144824 (2)

Fyrir nokkrum dögun fékk ég áminningu frá facebook um að það eru 7 ár frá því íslandsbanki hafði formlega af mér veraldlegri aleigu með aðstoð hinna ýmsu ”réttargæslumanna” og til að kóróna óþverraskapinn var ég gerður að afbrotamanninum og gerður gjaldþrota af sömu aðilum.

Í tilefni dagsinns ákvað ég að gefa þeim 13 aðilum sem höfðu sig sem mest í frammi við þennann þjófnað, afmælisgjöf. Þetta eru sömu 13 aðilar og ég kærði til aðþjóðaglæpadómstólsinns í Hag fyrir nokkrum árum síðan, en lítið komið út úr nema að þetta er í skoðun í pakka með fleirri sambærilegum málum frá íslandi.

Afmælisgjöfin er sú að ég pantaði tíma hjá svakalega öflugum voodoo svartagaldursmeistara sem ég hitti hér á flakki mínu í thailandi fyrir nokkrum áratugum síðan, það er mjög erfitt að fá tíma hjá honum því það sækjast mikið af pólutíkusum og milljarðamærinum í að fá aðstoð frá honum. Ég fór aftur til hanns um mitt ár 2015 til að fá ráð hvernig ég gæti losað mig við þá reiði sem enn væri í mer vegna aðgerða bankanns og skósveina hanns, í þeirri heimsókn bað ég hann að koma taumhaldi á þann mann sem ég hafi verið minn maður í bankanum og ég treyst í einu og öllu, en síðar kom í ljós að framkoma hanns og gerðir voru verulega ljótar, hann var aðstoðarbankastjóri í íslandsbanka í þarabakka.

Útibúinu í þarabakka og hanns starf var lagt niður einu og hálfu ári seinna.

il_fullxfull.928068330_dloy

Ég fékk tíma strax deginum eftir og hann tjáði mér að hann hafi verið að bíða eftir að ég hefði samband. Við ákváðum að skila skömminni til þeirra sem eiga hana og byrja fyrst á þeim 13 aðilum sem komu að ákvarðanatöku eða höfðu sig mest í frammi, ákeðið var að leggja líkamlega og eða andlega fjötra á þessa einstaklinga og aflétta þeim ekki fyrr en þeir hafi horfst í augu við gerðir sínar, ornir tilbúnir til að leiðrétta þær og bæta þann skaða sem þeir hefðu ollið.

Ég þurfti að hafa með mér fullt nafn þeirra og andlitsmynd, sem og ég gerði. Andrúmsloftir í hofinu var rafmagnað og mikil orka í gangi, hann bað mig að taka fullan þátt í athöfninni, sagði að ég væri í svo nánu sambandi við almættið, náttúruvættina á eynni sem ég væri frá og þann anda og andalæknaheim sem því fylgdi að ég væri fullfær um þetta sjálfur. Fyrst var búin til vaxbrúða úr bíflugnavaxi sem táknaði gerendur nöfn þeirra allra var þulin upp stanslaust meðan brúðan var gerð, andrúmsloftið var kíngimagnað þarna í hálfrökkrinu við kertaljósin og reykin úr eldstæðinu sem hitaði vaxið í brúðuna, síðan var nöfn allra gerenda ritað á blað með myndinni af húsunum sem bankinn tók, blekið sem notað var til að skrifa var sérstök blanda af kópruslöngu og sporðdrekablóði, orkan magnaðist stig af stigi og þegar verið var að skrifa nöfnin á blaðið. Ekki minkaði dulúðlegt andrúmsloftið við það að það dimmdi yfir og það byrjaði að riggna með tilheyrandi þrumum og eldingum, sem eru ekki af minni gerðinni hér á monsúntímabilinu.

Þegar búið var að skrifa nöfn allra gerenda á blaðið með blóðblöndunni þá var vaxdúkunni komið fyrir á miðju blaði og útlínur hennar dregnar upp með sama bleki, síðan var mynd af hverjum gerenda fyrir sig komið fyrir á dúkunni með þeim fyrimælum að skammast sín, horfast í augu við gerðir sínar, og vera tilbúin til að leiðrétta og bæta fyrir gerðir sínar, síðan var prjóni, sem búið var að glóðhita oddinn á, stungið í gegn um myndina inn í vaxdúkuna með þeim fyrirmælum að þessum samviskubits prjónn, sem veldur líkamlegum og eða andlegum óþægindum,verð ekki fjarlægður fyrr en viðkomandi hefur horfst í augu við gerðir sínar, leiðrétt þær og bætt fyrir þann skaða sem þær ollu.

Meðan á þessu stóð fannst mér húsið hreinlega nötra af ósýnilegum krafti, ég á ekki til þau lýsingaorð sem lýsa þessu, og hef ég nú ýmislegt séð í þessum efnum, til að kóróna stemmninguna þá byrtist fullvaxin kópra eiturslanga inni á miðju gólfinu í hofinu, hún hefur nú sennilega verið að flýa úrhellisriggninguna sem kom í kjölfar þrumanna og eldinganna, en henni var leiðbeint út aftur svo hún ylli ekki vandræðum.

Þessi athöfn20190514_145531 stóð í meira en þrjá klukkutíma og að henni lokinni var mér afhennt dúkan og tilheyrandi og sá gamli kvaddi mig með þeim orðum að ég væri fullfær um að gera svona lagað sjálfur, hann sagði að við munum ekki hittast aftur því hann væri orðin æfargamall (komin á tíræðisaldur) og stutt í að hann hverfi héðan úr þessari jarðvist.

 

Þessi gjörningur lítur kannski grimmilega út, en það er lítið fallegt við að taka heimilin af yfir 10.000 fjölskyldum og senda þær í óvissuna, út á guð og gadinn.  Engin tók við þessum fjölskyldum og leiðbeindi þeim hvorki eftir að þeim var hennt út eða meðan á þessu hryðjuverkaástandi stóð, stundum mánuðum eða árum saman. þá var fölskyldum hótað, oft mörgusinnum í mánuði, bréflega eða munnlega að ef þær borguðu ekki (meira en þau geta) þá verður ráðist inn á heimili þeirra og þeim hennt út, ef þau hafa sig ekki á brott áður, og heimilin hirt af þeim. Og allt var þetta vegna þess að vissir aðilar sáu að þarna gætu þeir eignast meiri pening í formi hærra verð hlutabréfa sinna, sinn lögfræðikosnað  eða banka bónusar fyrir ”dugnað” við endurheimtu skuldaMagic-spells.

Svo öfugsnúið sem það er að ef þú lendir í vanskilum vegna þess að þú átt ekki nægan pening, eða aðgang að þeim,  þá fyrst er nauðsin fyrir þig að vera sterk efnaður svo þú eigir einhvern möguleika á að verja þig og þinn rétt, eða að vera svo ofurgreindur að þú geti lesið þig í gegn um og lært lögfræðina á nokkrum dögum. Menn og konur unnu eins og þau gátu, og oftar en ekki meira en þau gátu, til að reyna að borga eða verjast ofureflinu en brunnu út með þeim andlegu og líkamlegu þjáningum sem því fylgir og ekki bætir úr skák að ekki er nóg að friðhelgi heimilisinns er tekin frá þér,  því það er einnig litið á þig sem afbrotamann líka, ”maður á að borga skuldirnar sínar ekki satt” var viðkvæðið.

samuletworship

Gerendur yfta öxlum og segja: Ég var bara að vinna vinnuna mína.  Þetta sagði ”baðvörðurinn” í Auschwitz líka. Þetta kann að skýra hegðun þeirra en afsakar hana ekki, svo maður noti vinsælan dómara ”frasa”.

Því miður fara dómar ekki endilega eftir réttlæti, hvað þá heldur samgirni, eins og ég hélt í einfelni minni þegar væntingar mínar voru til dómstóla að þeir leiðréttu mistök banka og sýslumanna.

Það hafa því er nú verr myndast hefðir á að túlka sum lög þvert á orðana hljóm og upprunalega meiningu, í einhverra þágu? það virðist skipta meira máli að vera með ”klókan” lögmann eða lögfræðideild sem getur varið góðum tíma og fjármunum, í að finna glufur og fordæmi til að ”rökstyðja” mál sitt. Peningalaus ólöglærður grandalaus einstaklingur hefur engan möguleika á réttlátri hvað þá sangjarni málsmeðferð gegn þvílíku ofurefli.

 Allt og fáir lögmenn hafa þann kjark og þor sem til þarf til að fara gegn ríkjandi hefðum og túlkunum skólafélaga, kennara og kollega sinna, þó þau séu greinilega þvert á lög, enda er það skiljanlegt því þá eru þeir félagsskítar og fá þeir á sig vandræðagemsastimpil og ekki úthlutað ”góðu bitunum” sem sem gefa vel af sér.

Mér finnst það í lagi að gerendur fái að finna á eigin skinni þá vanlíðan sem þeir ollu, verði það til þess að þeir finni sinn botn og snúi sínu lífi til betri vega.

Ég læt fylgja með nokkrar myndir af dúkunni og því sem henni fylgir, en það mátti ekki taka myndir af kallinum né hofinu svo ég læt myndir af netinu fylgja með sem lýsa vonandi andrúmsloftinu

facebook áminning (2)9-west-african-voodoo


« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Bogi.

Bestu þökk fyrir að deila reynslu þinni sem og
að greina svo ýtarlega frá þeim Voodoo - galdri
sem beint var að tilteknum einstaklingum.

Í Austur-Evrópu er mjög ríkjandi það
sem nefnist Svarti - galdur og öðrum Evrópulöndum
einhverjum það sem gengur undir heitinu Hvíti - galdur.
Menn geta einfaldlega flett þessu upp
ef áhugi er fyrir efninu.

Mátti til að skrifa nokkur orð í tilefni af þessu framtaki þínu.

Ég held að þú losnir undan þessu oki þínu
og að þér takist að byggja hús þitt að nýju.

Held reyndar að þú gerir gott betur og
að þessi tenging þín milli himns og jarðar
geti verið upphafið að þeim kraftbirtingarhljómi
sem felur í sér að sjá nýjan himin og nýja jörð.

Með bestu kveðju.

Húsari. (IP-tala skráð) 23.5.2019 kl. 03:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband