Kæru ráðamenn þjóðarinnar dustið nú rykið af gömlu góðu skinseminni

Það hlýtur að vera einhver hugsvik í gangi hjá ráðamönnum þjóðarinnar þegar ekki fæst atvinnuleyfi fyrir sérhæfðan útlending, vegna þess að hann er ekki frá rétta landinu þó sannarlega hefur  verið reynt, í rúmt ár, að fá sambærilegan starfskraft af EES svæðinu.

atvinnuleyfisferlið tók 4 mánuði með tilheyrandi pappírsflóði og tryggingum en endaði með neitun næsta var að kæra neitunina til félagsmálaráðuneitisinns og hefur það tekið hingað til 10 og hálfan mánuð en ekki hefur tekist að afgreiða kæruna ennþá

á meðan stendur nýbyggt og fullklárað Thailenska spa hús mitt ónotað og hefur gert í 11 mánuði vegna þess að ekki fæst atvinnuleyfið fyrir spa sérfræðinginn

ég er ekki tilbúin að opna spaið með einhverju hálfkáki og eyðileggja þar með rekstrargrundvöll þess.

Kæru ráðamenn dustið nú rykið af gömlu góðu skinseminni sem þið eigið ennþá vel geymda á einhverjum góðum stað

af disk 004

Bogi Jónsson


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband