Það verður gaman að sjá hvort sama gildir fyrir Jón og séra Jón (eða séra Jónínu)

Það verður fróðlegt að fylgjast með hvort umsóknatferlið taki jafn langan tíma fyrir  Íslenska Aðalverktaka og það tók mig, að reyna að fá sérfræðing utan EES til starfa.

það tók 9 mánuði að fá neitun á atvinnuleyfinu eftir að hafa verið búin að skila inn þeim gögnum sem um var beðið svo sem sakavottorði, umboðum ráðningarsamningum samþykktum af verkalýðsfélagi, tryggingum og rökstuðning fyrir þörfinni á sérfræðingnum. einnig var ég búin að auglýsa bæði hérlendis og á EES svæðinu eftir starfsmanni með þá sérfræðiþekkingu og reynslu sem mig vantaði.

Vinnumálastofnun sendi mér á annan tug starfsumsókna  frá fólki innan EES,ein umsækjandi sagðist búa yfir þeirri sérþekkingu sem mig vantaði, ég svaraði öllum umsækjendum og ítrekaði við þá hvort þeir hefðu þá sérfræðiþekkingu sem ég þarfnaðist, einn umsækjandi svaraði og sagðist ekki búa yfir þeirri þekkingu sem mig vantaði.

Næsta skref var að kæra neitunina til félagsmálaráðuneytisins það tók aðra 9 mánuði að fá neitun á þeim bænum, á meðan stóð nýbyggt og sérinnréttað hús undir starfsemina autt því sérfræðinginn sem vantaði til að hefja rekstur fékk ekki atvinnuleyfi.

Nú er neitunin og umsóknarferlið í skoðun hjá umboðsmanni Alþingis og hefur verið þar frá því í september 2007 það gengur eitthvað erfiðlega fyrir umboðsmann að fá gögn frá félagsmálaráðuneytinu þrátt fyrir ítrekaðar ítrekanir.

í dag, tveimur árum síðan að atvinnuleyfisumsóknin var lögð inn, hef ég ekki getað haldið úti rekstri þeim hluta fyrirtækisins sem er byggt upp á þeirri sérfræðiþekkingu sem ég þarfnast nema með hálfkáki því ekki hefur fundist starfsmaður með þá kunnáttu og reynslu sem til þarf og er tilbúin að vinna á Álftarnesi.

fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér ferlið í smáatriðum geta séð það  "HÉR"

 


mbl.is Sækja um leyfi fyrir 100 sérfræðinga frá Kína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Þorsteinn Valur Baldvinsson

Þetta var ekki vandamál við Kárahnjúkavirkjun, gerðu bara eins og þeir, ekki spyrja.

Þar var byggð stærsta stífla Íslandssögunar, án nánast allra iðnaðarmanna, örfáir Íslendingar héldust við til að byrja með, en enginn var til staðar er leið á verkið og hið opinbera blessaði allt saman.

Held að þín mistök liggi í því ,að vera að spyrja og sækja um leifi, það á bara að framkvæma fyrst og útbúa svo samning um þjónustuviðskipti, ef kæra kemur.

Fordæmin eru kominn.

Þorsteinn Valur Baldvinsson, 20.3.2008 kl. 14:35

2 Smámynd: Guðrún Magnea Helgadóttir

Bogi. Að skrifa, EKKI..hjálparbeiðni til Alþingismanna, er að spara krónurnar sem fara í póstkosnaðinn...

Guðrún Magnea Helgadóttir, 20.3.2008 kl. 15:55

3 Smámynd: Brynja Hjaltadóttir

Það verður gaman að sjá. Flott nýja lúkkið á þér  Algjör hnakki..hehe

Brynja Hjaltadóttir, 22.3.2008 kl. 03:07

4 Smámynd: Solla Guðjóns

 

GLEÐILEGA PÁSKA......

Solla Guðjóns, 23.3.2008 kl. 03:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband