ÚPPS og ég afhjúpa friðarkúluna kl 20 annað kvöld

21 des 08 012Það mætti halda að almættið (hvaða nafni sem það nefnist) lítist ekkert á friðarkúluna miðað við veðrið sem verður á morgun 22 des þegar ég afhjúpa friðarkúluna. eða kannski langar því að sjá hverjir eru tilbúnir að leggja rok og rigningu á sig til að sína friðaráhuga sinn?


mbl.is Stormi spáð um landið sunnan- og vestanvert annað kvöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinur litla mannsins verslar í Fjarðakaup

Uppáhalds stórmarkaður minn er Fjarðakaup, og ég er ekki frá því að þar spilar inní að hann tilheyrir hvorugum matvöruverslunarrisunum Kaupás né Högum, en kannski er það vegna þess að það er einna styðst hjá mér í Fjarðakaup


mbl.is Kemur ekki á óvart
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ótrúlega mörg brögð af trúnni.

ég hef verið að spökulega sérstaklega síðustu mánuði um trúarbrögðin vegna verks sem ég er að gera og mun afhjúpa 22 des kl. 20 hér við burstabæinn á hliði sjá hér Friðarkúlan
mbl.is Hver stýrir trúnni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðarkúlan að fæðast

A7WBTPZCA8SM648CA924RDUCAMVL0JNCA66THKQCA4U2ZKPCASENWRXCAR4KB3RCAI9LFO5CASY44GKCA0PU5VXCAIPWEWYCAFIL0B2CAL0QJ4WCADET2DHCAT310NPCACXDSS4CAU6MVN2CA3USQ0PJæja þá er friðarkúlan að taka á sig mynd ég var í gær að mála 48 trúartákn á kúluna, ég komst að raun um það að þau trúartákn og ýmsar útfærslur af þeim skipta hundruðum ég ákvað að fara tvo hringi í kring um jörðina og setja eitt tákn á hvert tímabelti í hring þannig endaði ég á 48 táknum.

Það var umfjöllun um friðarkúluna á vísir og fréttablaðinu og myndin er þaðan

Forsaga

Fyrir allnokkrum árum síðan þá dreymdi mig nótt eina að ég væri að gera einhvern hlut sem ég væri að túlka á minn hátt það að við erum öll íbúar í sömu íbúð (jörðinni okkar) þó að við innréttum herbergin okkar misjafnlega eftir smekk hvers og ein og þannig að okkur líði vel í  því þá geta herbergin verið æði misjöfn enda erum við æði misjöfn sem betur fer.

Þar sem við erum nú einu sinni manleg þá höfum við tilhneigingu til að halda því fram að okkar herbergi er fallegast eða best, þar sem okkur líður vel í því og meira að segja þó að við værum ekki búin að kíkja inn í öll hin herbergin. Annað og merkilegra er það að við eigum ekki svo erfitt  með að fullyrða það hvað við erum heppin að búa ekki í einhverju vissu herbergi sérstaklega ef það er í hinum enda íbúðarinnar og þú hefur kannski ekki skoðað þig um í, jafnvel ert ekki alveg viss um að það er til, en hefur alla veganna heyrt talað um það.

Þessi draumur var þaulsetin í huga mér og með árunum dreymdi mér (dagdraumur) að gera þetta einhvertímann að snertanlegum veruleika,  því sá hluti heilans sem við notum mest dags daglega á erfitt með að sætta sig við hluti nema hann er búin að sjá þá og helst að líkaminn er búin að snerta hlutinn

 Ég var ótal oft búin að útfæra hlutinn á hina ýmsu vegu en það vantaði alltaf eitthvað upp á.

Það var ekki fyrr en þegar  yoko ono kynnti okkur  hið stórkostlega verk friðarsúluna og eftir að ég las um það að Dr. Gunna hafi ekki verið boðið  þegar friðarsúlan var afhjúpuð og hann hafi verið hálf stúrinn yfir því,  ég bauð honum í sárabætur í alsælu spahús sem ég er með hér á Álftanesi en þá kviknaði á litlu 15watta perunni minni , þar sem Yoko er stórkostlegur persónuleiki á hún auðvelt með að gera stórkostlegt listaverk og þar sem ég rétt nær því að klóra upp í meðal persónuleika þá ætti ég að geta gert meðal gott listaverk.

Síðan þá hefur komist mynd á verkið sem eftir dálítið erfiða fæðingu nú síðasta mánuð er hugmyndin endanleg það tók fáeina daga að smíða hana og nú er ég að fínisera með málningu og fl.

Tilgangur

Áðurnefnd herbergi geta táknað kynþátt menningu eða trúarskoðun, mig hefur fundist alveg sérstaklega sérkennilegt hve auðveldlega við lendum í óþarfa árekstrum vegna trúarskoðana eða trúaskoðanaleysi. Í mínum huga geta flestir jarðarbúar verið sammála um það að það er bara til eintt almætti einnig geta flestir verið ósammála um það hvað hann heitir: guð, kærleikur, nirvana, lífsorka, æðri máttur, alla, alheimsorka, ég sjálfur,almættið,  geimverur eða hvað önnur nöfn sem manlegir menn hafa nefnt  það sem orðaforði okkar og skilningur getur illa líst. Ég er illa lesin í trúarbragðafræðum, enda illa lesblindur, en ég stend í þeirri trú að trúarbrögð eigi að hafa umburðalindi við önnur trúarbrögð því mennirnir sem koma trúarbrögðunum á framfæri eru jú mannlegir og hafa tilhneigingu til að líka best við sitt herbergi.

Ég trúi því að öllum trúarbrögðum séu ætluð til góðs, til að létta okkur lífsgönguna, en þar sem  boðendur trúarinnar eru manneskjur og þar að leiðandi með sína takmarkaða skilning og þurfa að útskýra tilfinningar og líðan með orðum sem sem erfitt eða ómögulegt er að gera og síðan þarf manneskjan sem meðtekur að breyta orðunum aftur í tilfinningu eða líðan. Sumir hlutir sem teknir hafa verið og settir í sögur til að lýsa tilfinningum eða líðan hafa í aldanna rás breytta meiningu í huga okkar og einnig hefur textum stundum verið breitt til að einfalda útskíringu eða til að hafa betri stjórn á sínu fólki. Ég trúi því í öllum tilfellum hefur meiningin verið góð þó útkoman hafi ekki alltaf verið farsæl. Við verðum öll að hafa umburðalindi fyrir öðrum trúarbrögðum og trúleysi því það eru jafn margar leiðir að sama marki og manneskjurnar eru margar.

Þess vegna ákvað ég að setja þau trúarhópa merki sem ég gat grafið upp á friðarkúluna og ég vænti þess að fá, þann 22 des klukkan 20:00, þegar kúlan verður formlega afhjúpuð á látlausan hátt, sem flesta forsvarsmenn  hópanna, og aðra sem hafa áhuga á að verða pínulítið betri á morgun en þeir voru í dag  til að leggja blessun sína á það að kúlan megi vera sandkorn á vogarskál friðar og sátta í heiminum því:

Til þess að friður og sátt ríki í heiminum þarft þú einungis að fá eina manneskju  til að verða til friðs, ÞIG. Eftir því sem fleiri tækju þá ákvörðun yrði óhjákvæmilega meiri friður í heiminum.

Reyndu  á hverjum degi  að búa þér til fallega fortíð.

 

Friðarkúlan er til afnota fyrir alla íbúa allra herbergja í íbúðinni okkar (jörðinni)

Það eru raufar í kúlunni sem ætlaðar eru til að fólk seti í óskir sínar um frið á jörð og betra líf.

Svo biðum við til almættisins (hvaða nafni sem við nefnum það) að hjálpa okkur við að láta óskina rætast ef hún er okkur til farsældar.

 


Setningar á friðakúluna

Ég var að hnoða saman setningum sem mér fannst eitthvað vit í og ætla að setja einhverjar þeirra á friðarkúluna. erfitt að ákveða.

 

Hér eru pælingarnar:

 

Til þess að friður og sátt ríki í heiminum þarft þú einungis að fá eina manneskju  til að verða til friðs, ÞIG.  Eftir því sem fleiri tækju þá ákvörðun yrði óhjákvæmilega meiri friður í heiminum.

Reyndu  á hverjum degi  að búa til þér til fallega fortíð.

Það sem aldrei hefur gerst áður getur alltaf gerst  aftur.

Ekkert  er svo slæmt að það hafi ekki eitthvað gott í för með sér. Jafnframt er ekkert svo gott að það hafi ekkert slæmt í för með sér.

Það eina sem þú þarft að gera til að ná árangri er að gera það.

Löngum er vaxtabroddur framfara.

Til þess að vera í sátt við aðra verður þú að kunna að sættast  við sjálfan þig

Það er farsælast  að vera þú sjálfur, því þú ert enginn annar.

Það er allt hægt, þetta er einungis spurning um vilja og stundum hverju þú vilt sleppa í staðinn.

Þú getur glaðst yfir því, að þeim mun meiri sem erfiðleikarnir eru þeim mun meiri lífsgleði öðlast þú að þeim loknum.

Allt sem kemur upp á er okkur til góðs, þó okkur finnst það mjög ósamgjarnt meðan á því stendur, þá komum við til með að meta það seinna á lífsleiðinni.

 


Enn þrjóskast ég við

nú setti ég húsið á ebay.de  Þýska ebay sjá hér

 1960LogoOvalFull3


Hálftími eftir af ebay uppboðinu

Hálftími eftir af ebay uppboðinu

sjá hér


Ótrúlega fallegar norðurljósa myndir

nordurljos_alftanes%20026b2b nordurljos_alftanes%20007b

Frábærar myndir af íbúðarhúsinu mínu sem snillingurinn Fred Schalk tók


Ísland / Thailand

Þegar ég kynntist eiginkonu minni, sem er frá Thailandi,  þá voru alheimsferurðardrottningarnar miss world og miss universal frá Íslandi og Thailandi nú um 20 árum síðar standa þessar þjóðir í miklum mótmælum við sínar ríkisstjórnir.

Ég vona að þær verði samstíga í jákvæðari málum í framtíðinni en þær eru núna


mbl.is Ráðist inn í Seðlabankann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fallin frá tilboðinu á Ebay

Þegar ég fór á Ebay síðuna mína í morgun var tilboðið upp á 1.400.000 $ horfið Frown 

Þegar ég grennslaðist betur eftir því þá kom það fram að bjóðandi telur sig hafa slegið inn ranga upphæð og fékk tilboðið niðurfellt, ég vissi ekki að það væri hægt, en það er nú svo sem eðlilegt að það er hægt því það er alltaf hægt að gera mistök.

Hvort það er nú raunin í þessu tilfelli eða hvort bjóðandanum hafi mislíkað athyglin sem þetta olli á vetfangi fjölmiðlanna í gærkvöldi?

sjá Ebay auglýsingin:  Húsin   og   Cadillacin


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband