Færsluflokkur: Bloggar

Húsið á ebay 4 dagar eftir

þá eru 4 dagar eftir af síðustu ebay tilraun minni (sjá hér)

ef húsið selst ekki þá hætti ég með vönduðu Thailensku kvöldverðina þar sem gestir geta sjálfir komið með drykki. og breyti staðnum í kaffihús með kaffi, kakó pönnsur, vöfflur og íslenska kjötsúpu.

vegna kreppunnar þá næ ég ekki að fæða bankann á upprunalegum forsendum, ekki hægt að gera mjög vel við fáa heldur verð ég að reyna að gera minna fyrir fleiri.

IMGP0905


Ég næst?

Þetta er kannski málið

ef ég næ ekki að selja á Ebay.com, eða annarstaðar

Hér er nýa Ebay auglýsingin mín

 


mbl.is Eyðilagði íbúðarhúsið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bleiki Fíllinn

scan0001Fyrir allmörgum árum byrjaði ég með austurlengst vöruhús í Hafnafyrði, þetta var á þeim tíma þegar Bónusfeðgar voru hvað duglegastir við að klaga og atast í samkeppnisaðilanum Hagkaup, til að ná sér í ókeypis umfjallanir og auglýsingar.þar sem þeir voru nú ornir þokkalega stöndugir fannst mér í lagi að hrekkja þá pínulítið, ég teiknaði fíl sem líktist svíninu þeirra, bara stökktum glaðlegri, og setti sem logo á þakið þar sem ég var með verslunina, skiltið hafði ekki verið hálfan dag á þakinu þegar Jón Ásgeir geystist inn í verslunina og sagði mér að taka skiltið niður annars hefði ég verr af, ég útskýrði fyrir honum að töluverður munur væri á svíni og fíl, við litin skilning.stuttu seinna mætti fógeti á svæðið og lagði logbann á fílinn. þar sem ég hafði enga fjárhagslega burði í lögfræðislagsmál við þá feðga lét ég undan nokkrum dögum síðar og fjarlægði fílinn.ég frétti það nokkru síðar að Jóhannes hafi orðið hundfúll þegar hann las viðtal við mig stuttu seinna í mbl. þar sem ég sagði eitthvað á þá leið að það hafi komið fyrir hjá '68-'73 kynslóðinni að þegar þeir voru í annarlegu ástandi þá sáu þau stundum bleika fíla en helvíti hlýtur ástandið á fólki að vera slæmt þegar þau halda að fílarnir eru svín.
mbl.is Samkeppni um nafn á nýrri lágverðsverslun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slíta tengsli við Ísland og stofna sjálfstætt ríki

Jæja fer þá ekki að verða tími til að taka Hliðstangann vopnalausu hernámi og lýsa yfir sjálfstæðu ríki, Nýa Ísland.

Mér fannst nóg um þann óumbeðna auka Bónus sem lagður var á fasteignaveðlán mín við fall bankanna ( sorry 30 milljónir í viðbót gjöri þér svo vel vinur) það hafa margir verið settir í fangelsi fyrir minni fjárkúgun.

en að skuldbinda mig og mína um áraraðir fyrir gerðir nokkra Íslenskra glæpamanna, það er útfyrir alla þjófabálka.

hlid-google-naer

 


mbl.is Icesave-samningur gerður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ebay síðasta hálmstráið

Þá er það síðasta hálmstráið að selja á ebay ( sjá hér).Þakka fyrir snilldar landsstjórn nú og síðustu ára. og kveðja ástkæra ylhlýja klakann með söknuði

 


mbl.is Niðurfelling þýðir kollsteypu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkisstjórninni boðið í jarðarför

Það kæmi mér ekki á óvart að eftir nokkrar vikur tilkynna ráðamenn okkur að róðurinn er þyngri en áætlað var, þegar það var áætlað síðast að róðurinn væri þyngri en áætlað væri.

Það þyrfti að bjóða ríkisstjórninni í jarðarför, því það lítur út fyrir að hún er á einhverri annarri plánetu en almenningur.

Ég, eins og annar almenningur, reyni að standa við mínar skuldbindingar þó svo að forsendur þeirra hafi verið breytt, að mér forspurðum, og hækkaðar einhliða um tugir miljóna umfram áður útgefið greiðsluplan.

til þess að reyna að standa í skilum þarf að grípa til örþrifaráðstafanna eins og (ÞESSARA.)


mbl.is Þyngri róður en áætlað var
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Rauður puntur hjá mér að Hliði

Ég sé að það er rauður puntur nákvæmlega þar sem ég á heima að Hliði Álftanesi

ég vona að skjálftamælarnir eru ekki svo nákvæmir að það hafi mælst þegar ég fór á klósettið í gærBlushFrownPinch


mbl.is Skjálftahrinan að fjara út
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eldgos?

mig hefur tvisvar dreymt það, fyrir ca 10 árum síðan, að ég var á leið heim til mín hér úti á Álftanesi og sá að það voru komnar gröfur og byrjaðar að grafa á miðsvæðinu hér á nesinu. þegar ég var komin heim þá lít ég út um gluggann og sé að það er byrjað að gjósa í bláfjöllum, síðan færist gosið vestar eg er komið á kleifarvatnssvæðið, en það var svo sem allt í lagi, nema að þá fer að tæmast kvikuhólf undir álftanesinu og við urðum að drífa okkur í burt og það stóð glökt.

nú er búið að bjóða út uppgröft og gatnagerð á miðsvæðinu og til stendur að byrja að grafa fljótlega.

þessi draumar voru svo raunverulegir og höfðu þau áhrif á mig að ég fékk mér bát sem ég var með hér í mörg ár og eftir að hann fór þá hef ég oft hugsað að ég verði nú sennilega að fá mér annan til öryggis

en draumar eru nú bara draumar??????????


mbl.is Skjálftinn mældist 4,7 stig
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Pínu betri í dag en í gær

Ég ætla að mæta á svæðið,

það verður gaman að sjá hvort maður lærir ekki eitthvað

það sakar ekki að verða pínu betri í dag en í gær, því lengi getur gott besnað.

 

P.S. Maður verður að hæla sjálfum, annars gerir það bara einhver annar. Grin


mbl.is „Mjög, mjög, mjög gott“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hræddi Kolbrún lífið ur Líf ?

Það tíðkaðist hér á árum áður að hræða börn með Grílu, Og væntanlega eru hreindýr og hreindýrskálfar (jólasveinanna) orðin vön henni.

eitthvað enn nú hræðilegra hefur hrætt hana Líf það er spurnin hvað.

thai_jolasveinar.jpg


mbl.is Dagar Lífar taldir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband