Færsluflokkur: Bloggar
2.10.2009 | 13:02
Ég er að "spökulera"
ef ég skil rétt þá er Icesave deilan vegna þess að þeir sem áttu peninga í bönkunum var mismunað, þeir sem áttu peninga inní bönkun sem voru staðsettir á Íslandi fengu alla sína peninga til baka en þeir sem áttu peninga í Íslenskum bönkum erlendis fengu einungis hluta sinna peninga.
Væri ekki hægt að leisa málið með því að þeir sem fengu alla sína peninga til baka skiluðu hluta þess aftur til bankanna.
þá væri ´líka búið að jafna tap þeirra sem eiga peninga og þeirra sem eiga skuldir?
en þeir ríku eru að vanda vald meiriri vegna sinna peninga, hvernig svo sem þeir hafa eignast þá. og ég er ekki að sjá að þeir borgi til baka??
sem sagt bara spökulering.
![]() |
Hneisa fyrir Alþjóðagjaldeyrissjóðinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
26.9.2009 | 14:08
Til hvers að byggja annan stærri spítala, þegar ekki...
Til hvers að byggja annan stærri spítala, þegar ekki er hægt að reka þann sem fyrir er sómasamlega.
Ég get ekki fundið trúanlega afsökun til að byggja annan stærri veitingarstað við hliðina á þeim gamla meðan ekki væri hægt að reka þann gamla sómasamlega
![]() |
Nýr Landspítali mun rísa |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
24.9.2009 | 19:17
Las þetta sem bleikan Fíl
Lesblindan mín heldur áfram að grínast í mér ég var komin niður í hálfa frétt og sá ekkert um fílinn, svo ég las fyrirsögnina aftur og vandaði mig enn þá betur og þá sá ég að það var verið að tala um bleikan bíl ekki bleikan fíl
Annars veit ég um ónafngreindan útrásavíking sem hélt að bleiki fíllinn minn væri svín, og seti lögbann á hann. ég held að þar hafi ekki verið um lesblindu að ræða sennilega önnur blinda sem hefur eitthvað með sið að gera.
![]() |
Stóð við loforð um bleikan bíl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.9.2009 | 18:31
Leyndarmála laust Ísland
Hvaða leynimakk og pukur er þetta alltaf eru alþjóð svoddan samansafn af óvitum og vitleysingum að ekki er óhætt að láta hana vita um hvað málin snúast.
Ætli við værum ekki í betri stöðu í dag ef við værum laus við allar þessar leyndir, hvort sem þær heita nú banka, launa, viðskipta eða eitthvað annað.
Nítt leyndarmálalaust Ísland Já takk
![]() |
Óska eftir trúnaði |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
9.9.2009 | 09:31
Lýsa yfir sjálfstæði
Það er magnað hvað mikill ófriður getur verið í annars litlu og kyrrlátu samfélagi.
Það er spurningin hvort ekki er kominn tími á að grafa í sundur eyðið að Hliðstanganum þar sem ég bý og lýsa yfir sjálfstæði frá Álftarnesi og Íslandi, (Tort Bogi eða Nýja Ísland) þar sem ævintýraleg óstjórn og áhugaleysi fyrir almenning er á báðum stöðum.
![]() |
Bæjarstjóraskipti á Álftanesi? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
7.9.2009 | 13:09
Og ég sem hélt að glæpir væru bannaðir
Ég hef sennilega ekki áttað mig á því að glæpir eru leyfilegir meðan þeir eru innan glæpasamtaka, stjórnmálaflokka, opinberi stjórnsýslu og hlutafélaga.
þannig að væntanlega verður að eyða þeim ramma sem glæpastarfsemi þrífst innann
smá þankagangur, burtséð frá vitrænni hugsun
![]() |
Vilja láta banna skipulögð glæpasamtök |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
10.8.2009 | 10:57
Ekkert svo slæmt að gott fylgi ekki í kjölfarið
Mér hefur sýnst það í gegn um tíðina að ekkert er svo slæmt að hafi ekki eitthvað gott í för með sér.
ég sé ekki betur en það er miður gott að lifa í alsnægtum (gott dæmi Michael Jackson). mannskepnan er svo óþroskuð að hún venst svo fljótt góðum (sem slæmum) hlutum að hún hættir að gera sér grein fyrir þeim og meta þá. því miður virðumst við þurfa á erfiðum hlutum að halda til að geta notið góðu hlutana
Ég er samfærður um að við komum mikið sterkari og betri manneskjur út úr þessu ástandi og þó ljótt er frá að segja þá held ég að þessar hamfarir eru það besta sem gat skeð fyrir íslensku þjóðarsálina. Þó það er hundleiðinlegt að fara í gegn um svona ástand.
Ég til dæmis sé ekki fram á annað en að ég missi heimili mitt og vinnustað, sem ég hef verið að byggja upp með eigin höndum og miklum metnaði. en það er allt í lagi, þó að það er ekkert gaman að því. Meðan þú gleymir ekki hvað það er sem skiptir máli í lífinu, það er að segja fjölskyldan, vini og aðrir samferðamenn manns í lífinu.
Ég trúi því að maður á að gera eins vel og maður getur í því sem maður tekur sér fyrir hendur og vera sáttur við niðurstöðuna, hvort sem hún er eftir manns væntingum eður ei. til dæmis þá var ég að breyta veitingastaðnum mínum í Sveitakaffihús, sem er opið alla daga frá 11-23 fyrir gesti og gangandi, til að sjá hvort það nái að fæða lánadrottnana. ef ekki þá er ég búin að reyna allt sem ég gat látið mig detta í hug og er í mínu valdi til að laga aðstæður.
sjá nánar á heimasíðu minni www.1960.is
![]() |
Gífurlegt þunglyndisálag á íslensku þjóðinni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
17.7.2009 | 00:48
Vonandi lætur eldguðinn mína Valhöll í friði
Ég ætla rétt að vona að eldguðinn láti mína valhöll í friði þar sem það eru ekki margar burstabæjar Valhallir eftir
![]() |
Smávægilegur eldur við Valhöll |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.7.2009 | 12:43
Gullnahliðinu breytt vegna afbókanna
Nú um þessar mundir er ég að breyta Gullnahliðinu sem var vandaður thailenskur kvöldverðastaður sem tók aðeins einn hóp á kvöldi, 6 - 40 manns, þar sem hópurinn gat verið í fullkomnu næði og kvöldið útaf fyrir sig og komið með sína drykki sjálf.
Í stað Gullnahliðsins kemur Forsetakaffi sveitakaffihús þar sem boðið verður upp á kaffi, te, vöfflur, pönnsur, kleinur og Íslenska kjötsúpu ásamt bjór og víni, opið verður alla daga milli 11 og 23 fyrir gesti og gangandi..
Ástæða breytinganna er að það var orðið svo mikið af afbókunum með of stuttum fyrirvara, í sumum tilfellum var búið að halda deginum frá öðrum í ár en svo afbókað með dags eða nokkurra daga fyrirvara sem er of stuttur tími til að smala saman í hóp fyrir aðra. Einnig höfðu hóparnir minkað og allt of stór hluti hópa var lámarkshópur 6 manns, þannig að það var orðið ómögulegt að fæða bankann að óbreyttu, það hefði valdið svo neikvæðum viðbrögðum, að fara fram á fyrirframgreiðslu og stækka lámarkshópinn um helming í viðráðanlega stærð, að mér fannst það ekki hægt.
Þannig að nú get ég ekki lengur gert mjög vel við fáa heldur verð að gera minna fyrir fleiri.
![]() |
Sæferðir taka upp staðfestingargjald fyrir bíla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
6.7.2009 | 12:36
Ekki sleppa spillingar og valda maskínunum
Það gladdi mig sú frétt að nú skyldi persónukjör verða mögulegt, en gleðin var skammlíf þegar ég áttaði mig á að það yrði einungis innan flokka.
Í mínum huga er persónukjör til alþingis, þegar persónur óháðar stjórnmálaflokksvaldaspillingarkerfum eru kosnar á þing.
Persónurnar sem bjóða sig fram geta að sjálfsögðu verið í stjórnmálaflokkum, trúfélögum, servéttusafnarafélögum eða hverjum öðrum félögum, en það persónan sem er í framboði ekki félagið sem hún er í.
Mér finnst heldur fantalega verið að snúa upp á sannleikan þegar verið er að kalla flokkakjör til alþingis persónukjör.
Í mínum huga er það einungis skelfilegt að ætla að halda áfram því fársjúka kerfi sem hefur fengið nokkra áratugi til að sanna sig, og við sjáum hvert það hefur komið okkur, þar sem þingheim er skipt niður í stjórn og stjórnarandstæðinga, orðin ein og sér segja mikið um þann sjúka leik sem þar fer fram, þar sem þingmenn leggja allt of mikla starfsorku sína til þess eins að eyðileggja eða lítillækka hinn helminginn af vinnufélögunum.
Ef starfsmenn í mínu fyrirtæki myndu haga sér svona væri ég löngu komin á hausinn. Ég er ansi hræddur um það að þingmönnum okkar hafi tekist að koma Íslandi á hausinn með þessu háttarlagi, og því skal haldið áfram, því miður.
![]() |
Hvaða breytingar fylgja persónukjöri? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)